Untitled photo

27. ÁGÚST 2018 (Frétt af www.grgolf.is)

GR BIKARINN: GUÐMUNDUR ÁGÚST OG HELGA KRISTÍN SIGRUÐU Á SECURITASMÓTI EIMSKIPMÓTARAÐARINNAR

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR og Helga Kristín Einarsdóttir úr GK sigruðu á Securitasmótinu sem fram fór í Grafarholti um helgina, keppt var um GR bikarinn og var þetta lokamót Eimskipsmótaraðarinnar fyrir tímabilið 2017-2018.

Skorið hjá Guðmundi var stórkostlegt en hann lék hringina þrjá á -14 samtals og setti jafnframt vallarmet á öðrum hringnum sem hann lék á 63 höggum.

Helga Kristín bætti sig um 10 högg á milli keppnisdaga og lék best þegar mest á reyndi. Í verðlaunafé fékk Guðmundur Ágúst kr. 250.000 kr. þar sem hann er atvinnukylfingur en Helga Kristín fékk kr. 70.000 í verðlaunafé sem áhugakylfingur.

Stigameistarar Eimskipsmótaraðarinnar urðu Axel Bóasson í karlaflokki og Guðrún Brá Björgvinsdóttir í kvennaflokki og fá þau hvort um sig kr. 500.000 í verðlaunafé fyrir þau afrek. Axel og Guðrún koma bæði úr GK og hampa titlunum sem Stigameistarar Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018.

Lokastaða efstu kylfinga í Securitasmótinu varð þessi:

1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (67-63-69) 199 högg (-14)

2. Axel Bóasson, GK (70-65-69) 204 högg (-9)

3. Rúnar Arnórsson, GK (68-72-67) 207 högg (-6)

4. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (71-70-68) 209 högg (-4)

5-6. Ólafur Björn Loftsson, GKG (70-70-70) 210 högg (-3)

5-6. Andri Þór Björnsson, GR (70-70-70) 210 högg (-3)

7. Andri Már Óskarsson, GHR (70-72-69) 211 högg (-2)

8. Kristófer Orri Þórðarson, GKG (70-71-71) 212 högg (-1)


1. Helga Kristín Einarsdóttir, GK (68-80-70) 218 högg (+5)

2. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (75-72-72) 219 högg (+6)

3-4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (80-71-71) 222 högg (+9)

3-4. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (77-72-73) 222 högg (+9)

5. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK (78-75-77) 230 högg (+17)T

- grgolf.is 

Untitled photo

Powered by SmugMug Owner Log In