Meistaraflokkur karla
Read MoreDagbjartur Sigurbrandsson var yngsti keppandinn í flokknum, fæddur í nóvember 2002 og því enn 14 ára gamall. Dagbjartur sigraði í 13-14 ára flokki á síðasta Meistaramóti og lék þá á rauðum teigum. en tæpum 1,4 kíómetrum munar á lengd Grafarholtsvallar eftir því hvort hann er leikinn af rauðum eða hvítum teigum. Með Dagbjarti á myndinni er Haraldur Heimisson, sem mætir ávallt til leiks á Meistaramót og hefur orðið klúbbmeistari í þrígang, síðast fyrir tíu árum.
Það verður að segjast eins og er að þó kylfingar geti ekki kvartað yfir veðrinu meistaramótsdagana, þá hefur lofthiti oft verið meiri og vindur hægari. Hiti oftast 10-12 stig, flesta daga hékk hann þurr, eins og sagt er, en stundum var nokkuð blástur. Á myndinni má sjá kylfinga að leik á fyrstu þremur holunum og þeirri 17. og 18.